Sigurður Atli lauk námi frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2011. Hann hlaut styrk frá Franska sendiráðinu á Íslandi til meistaranáms í myndlist við École Superieure d’Art et de Design Marseille-Méditerranée þar sem hann lauk MFA prófi árið 2013. Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga víða um Evrópu og haldið einkasýningar í Prag, Mílanó, Hamborg, Leipzig, Reykjavík og á Seyðisfirði. Árið 2015 stofnaði Sigurður Atli samstarfsverkefnið Prent & vini ásamt Leifi Ými Eyjólfssyni. Undir þeim formerkjum hafa þeir haldið fjölda námskeiða og sýninga, m.a. í Nýlistasafninu, Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, International Print Center New York og A-Dash í Aþenu. Auk þess gefa þeir út bókverk myndlistarmanna í gegnum Prent & vini verlag. Sigurður Atli hefur kennt við Listaháskóla Íslands frá 2016.